HÖDDA'S BLOG
Nemendafélög
02.01.2007 23:33:24 / Hörður

NÝTT BLOGG!

Ég er kominn með ógeð af blog.central.is, algjört drasl.. Alltaf einhvað vesen með hana þannig að ég ákvað að færa mig yfir í: bloggar.is. Þannig að nýja síðan hjá mér er : hoddy.bloggar.is


hoddy.bloggar.is


Laterrrr .. :)

» 0 hafa sagt sína skoðun

01.01.2007 18:15:29 / Hörður

blog.central.is = drasl

Þarf að fara að færa mig yfir í einhvað annað blogg félag, þetta blogg félag er drasl. Ætlaði að henda áramóta annál færslunni vegna þess að þegar ég setti hana inn þá voru ekki línu bil og greinabil þannig að þegar ég deleta þá hendist hin færlsan líka.. Djöfulsins skítur, þ.e.a.s. blog.central.is

Ég set inn áramóta annálinn í kvöld! :D

» 0 hafa sagt sína skoðun

16.10.2006 00:24:04 / Hörður

Hættur !

Vegna þess að það er mikið að gera hjá mér og bloggið mitt er hundleiðilegt þá hef ég ákveðið að leggja þetta blogg niður..!

Takk fyrir mig :)

Lateeeeeeeeeeeeer! :lol: :lol:

» 3 hafa sagt sína skoðun

25.06.2006 17:33:12 / Hörður

sunnudagur

Jæja fólk er ekkert rosalega duglegt við að lesa bloggið mitt lengur, kannski vegna þess að það er hundleiðilegt og þunglynt en hvað veit ég!

Ég hef voðalega lítið hvortsem er að skrifa um á sumrin, maður er nú bara í vinnunni alveg frá 8-7 og svo getur maður já, kannski skrifað einhverjar fylleríssögur og slúður af manni um helgar. En þið lesið voðalega lítið um mig á sumrin hérna þýðir bara að mér líður vel og þarf ekkert að tjá mig á þessari helvítis síðu jafn mikið og ég gerði, hehe jejeje...

Mamma, Ari og Unnur farin út þannig að ég hef bara pabba gamla að næstu vikurnar, hmmmm.. Já hann Herra. Húmor er ágætis karl en getur verið stundum þreytandi en já hann er alveg eins og ég, það er í eðli hans að halda áfram að ergja fólk þótt það sé alveg að klikkast (Þannig lætur hann oft við mig) "Er ég ekki fyndinn?"

"Pabbi ég var að spá"... "Þú mátt ekki spá, þú ert ekki spámaður"

Alveg ógeðslega pirrandi.. en það er samt ágætlega gaman að gamla karlinum og auðvitað þykir mér ofboðslega vænt um hann..

Jæja ég er farinn, hafið það gott um sumar, en já ég er ekkert hættur að blogga, bara skrifa mun minna en ég gerði.. I'm out peazzeee jejejeje snizzlee


» 0 hafa sagt sína skoðun

18.06.2006 23:56:01 / Hörður

Sunnudagur

Jæja mánudagur að koma í garð eftir ágætis fyllerí um helgina.. 6 vinnudagar framundan og vonandi gott djamm næstu helgi..

Jæja ég er smá pirraður vegna þess að ég er búinn að týna Ipodinum mínum. Endilega látið mig vita ef þið finnið hann heima hjá ykkur, ég er búinn að leita útum allt!

Einhvernveginn er rosalega erfitt að vera að vinna og vinna vegna þess að það er ekkert margt sem gerir mig spenntan næstu daga, jújú djamm næstu helgi en ég er að meina, það er engin utanlandsferð hjá mér nema örruglega í ágúst, maður er spenntur fyrir því en maður vill ekki vera of mikið að bíða eftir því vegna þess að það er í ágúst og þegar ágúst er kominn í garð þá er voðalega lítið eftir af sumarfríinu.

Ég veit að maður er spenntur fyrir skólanum vegna þess að maður var ekki í skóla núna á seinustu önn en maður verður samt að njóta sumarsins alveg 100% Ég er að reyna það eins og ég get. Hlakkar bara til að fá útborgað næst..þarf að byrja að spara, eða allavegana taka hluta af þessum pening og geyma, vill ekki eyða þessu í einhvað rugl eins og allur peningur hefur farið í hjá mér uppá síðkastið..

Jæja ég ætla að fara að sofa... Endilega commentið um einhvað ef þið viljið.. Góða nótt...

Kv. Höddi


» 0 hafa sagt sína skoðun

15.06.2006 13:08:44 / Hörður

Fimmtudagur!

Jæja í dag er fimmtudagur og á morgun er föstudagur! Tebó þá! Jejejeje! Ég vaknaði frekar slappur í morgun, enda ekkert skrítið þegar maður er alltaf að vinna í svona skítaveðri í JÚNÍ! Alveg fáranlegt, maí mánuðurinn var ekki jafn kaldur tel ég persónulega.. Jæja svo er 17. júní á laugardaginn, ætli maður geri ekki einhvað skemmtilegt þá? Jeje!

Jæja ég er hress en ég var að fara yfir yfirlitið á XY reikningum mínum og fékk eigilega sjokk, ég er búinn að eyða tæpum 18þúsund krónum í einhvað rugl á 6-7 dögum. Þetta er allt svona -200 kr, -700 kr og einhvað smáræði sem verður stærra, ég man ekkert eftir í hvað þessi peningur fór í nema þegar ég tjekka á þetta.

Ég ætla að hætta að eyða svona miklum pening í einhvað rugl, sérstaklega skyndibita ég er kominn með svo mikið ógeð af skyndibita að það er ekki eðlilegt. Þegar ég og Unnur förum út að borða þá tekur það okkur 30mínútur að finna einhvern stað því við erum alltaf að éta einhvern skítugan skyndbita.. haha :)

Jæja ég ætla að slappa af bara heima í kvöld og vonandi verður  maður orðinn góður á morgun fyrir Tebó.

Sincerly, Höddi!


» 0 hafa sagt sína skoðun

05.06.2006 17:17:13 / Hörður

Enn eitt bloggið

Já hæææ, ég veit að ég blogga ekkert það mikið but who cares? Mánudagur í dag, frídagur mjög fínt, 4 vinnudagar svo verður einhvað skemmtilegt gert næstu helgi.

Ég er samt búinn að kenna mér að lifa dag fyrir dag, miklu betra jeje! Öðruvísi í nýju vinnunni minni að maður er ekki alltaf að kíkja á klukkuna eins og uppá Hársögu... og það er öðruvísi að fá 3x meiri pening útborgað!

Jæja ég er farinn að gera eitthvað skemmtilegt, frekar dauft og tómt blogg bæ!


» 1 hafa sagt sína skoðun

30.05.2006 23:57:01 / Hörður

Þriðjudagur, minn næst seinasti!

Jæja það er þriðjudagur, 10 mínútur í miðvikudaginn viðburðarríka! Eða ekkert rosalega viðburðarríkur svosem.. ég sem ætlaði að kaupa einhvað nammi seinasta daginn, skrifa einhvað rosa kveðjubréf en ég gerði bara ekki rassgat! Skiptir engu mar..

Þetta verður rosalega skrítið að vera ekkert uppá Hótel Sögu lengur en ég á eftir að heilsa uppá fólkið samt af og til.. Já þetta hefur verið frábær reynsla og ég hef verið að vinna með sérstaklega skemmtilegu fólki þó eru nokkrir sem ég á eftir að sakna meira en aðrir, þið vitið hver þið eruð :)

Það er svosem ekkert meira að frétta, ég er að fara að vinna með strákunum núna á fimmtudaginn að helluleggja, þ.e.a.s. Davíð og Leif en ég hef ekkert heyrt í þeim síðan ég ákvað að taka mér smá pásu á póker enda er þetta eina sem þeir gera..

Já svo er hún Unnur mín orðin fötluð :| :D hehe

Jájá, haldið áfram að lesa ég er ekkert hættur.. Ég er ennþá fínn gaur þótt ég spila ekki póker á hverjum degi eins og þið.. minnkið þetta og komið útí körfubolta eða einhvað..okibb?


» 2 hafa sagt sína skoðun

26.05.2006 19:05:37 / Hörður

Föstudagurrrr jesssssör!

Jæja frískandi föstudags blogg sem ég ætla að skrifa hérna, ég er með Ignition á fóninum með R.Kelly þessi surtur kann að syngja maður!

Föstudagurinn var rosalega erfiður í vinnunni miðað við seinustu daga, maður var ekki alveg vanur þessu en Sigrún var komin í vinnuna, alltaf frábært að vinna með Sigrúnu, þótt að hún sé yfirmaðurinn minn! Skrítið? Já kannski en hún er frábær.

Jæja ég er hættur í hárgreiðslunni í bili, búinn með 2 annir og 8-9 mánuði á stofu. Fínn tími, fínn tími. Ég hef ákveðið að taka stúdentinn fyrst og fara svo í hárgreiðsluna, Sigrúnu var ekkert svekkt eða neitt henni fannst þetta bara fín ákvörðun hjá mér, svo sagði hún mér að við erum að fara alltof ung í þetta sem er alveg satt...

Djöfull líður mér vel og vá hvað ég er að fara að fá ööööööööl í kveeeeld !! :D:D Ég og Unnur erum að fara í stúdents partí hjá kærasta Nönnu vinkonu hennar. Jæja ég er að fara að helluleggja með Leifi og Dabba í sumar, úje ég er spenntur, svo er það FÁ í vetur með Ronna ræningjasyni, Snorra tjokk, Jóa northdaler.. Djöfull er maður orðinn spenntur fyrir öllu framundan..

En vá hvað mig vantar pening, ég er alveg blankur, ætla líka að reyna að finna mér aukavinnu í vetur í Levisbúðinni nýju eða einhvað.

Jæja þetta var frekar autt blogg, svona föstudagsblogg.. fílingur í fólkinu !!! Sofa út á morgun.. 8) 8)

Á að gera einhvað skrautlegt um helgina fólkið mitt góða ?? :lol:


» 1 hafa sagt sína skoðun

11.05.2006 01:12:11 / Hörður

edrúmennska, spilamennska, þreyta, leti.

Edrúmennska: Ég er búinn að vera edrú alltof lengi

Spilamennska: Ég er búinn að tapa of miklu í póker..

Þreyta: Ég sef ekki nógu mikið..

Leti: Það er alltof lítið að gera í vinnunni minni og þessvegna verður maður latur..

Þetta er samt allt að fara að breytast, Edrúmennskan hættir á þriðjudaginn þegar ég fer með henni Unni minni á Lokaballið hjá Mh..

Veit ekkert um spilamennskuna, held ég haldi áfram að tapa..

Ég ætla að fara að sofa meira!

Það verður vonandi meira að gera núna bráðlega í júní mánuði!

En annars eru þetta búið að vera mjög góðir dagar, reyndar frekar rólegir en ég og Toni höfum verið að brenna tíman á rotten.com og scatlovers.com

Ég var að setja felgur undir bílinn minn og hann er svona 10x flottari núna, endilega komið og keyrið framhjá og sjáið bílinn minn og mig..

Vonandi gangi ykkur vel í þessum seinustu prófum sem þið eigið eftir :lol:

P.s. Dabbi hvenær ætlarðu að sýna mér tellið? Professional poker player 8) HAHA


» 0 hafa sagt sína skoðun

08.05.2006 16:11:04 / Hörður

Working like a dog..

Sort of.. Neinei, ekkert að gera.. ég, Toni og Birgitta erum bara einhvað að chilla, reyndar er hún Birgitta með stelpu í stólnum hjá sér núna.

Toni er frægur fyrir myndböndin á símanum mínum eins og "Go fuck a goat" og "Konan mín er kraftarverka kona, go lick a pussy"

En það er annað mál.. Djööööfull er ég að fara að fá mér feitan burger heima :D Með sósu, lauk og tómat.. best í heimi.. Alla vegana í svona góðu veðri.

Well I'm out...


» 0 hafa sagt sína skoðun

02.05.2006 23:39:29 / Hörður

Já prófin og læti

Já prófin eru og við ættum að hrósa Snorra tossa fyrir að vera að læra, hann er búinn að beila á póker seinustu 5 skiptin sem ég hringi í hann, greinilegt að hann er ekki tossa anskoti eins og ég hélt. Good job Snorri tjokk ! :D

Annars er þetta blogg ekki um neitt, bara eitthvað þunglynt blaður í mér..

Ég er að reyna að lifa dag fyrir dag en ekki bara telja niður í helgina eins og ég hef verið að gera og ég held að það sé að ganga, en voðalega á fólk pening! Það er alltaf fullt að gera á stofunni minni, þar var megi segja mikið að gera þann 25. apríl-28. þegar mánaðarlok voru og eitthvað. Getiði hætt að eiga pening fólk? Mig langar að slappa aðeins af!!

Jæja ég er farinn að sofa NAKINN og hlusta á tónlist NAKINN og borða NAKINN.

Góða nótt :):lol::lol:


» 1 hafa sagt sína skoðun

28.04.2006 00:50:48 / Hörður

Föstudagurinn bara kominn

Ég veit ekki alveg hvað ég á að segja, en mig gengur samt alltaf betur að blogga þegar ég tala upphátt meðan ég er að skrifa. Ég skil ekki afhverju, en það er hálf hallærislegt... Bloggið mitt er hálf nöturlegt líka, en það er samt bara fínt því ég er hálf nöturlegur gaur er það ekki?

Lesendur góðir, núna eru páskarnir búnir og við fengum öll ógeðslegt /ógeðsleg páskaegg. Ég fékk tvö, eitt frá Nóa og eitt frá Góu.

Þessi páskaegg eru orðin svo ógeðsleg, eða erum við bara búin að eldast upp úr þeim? Var nammið meira þegar maður var yngri eða var maður bara svona lítill?

Afhverju er verið að troða brjóstsykum sem maður getur fengið í bankanum FRÍTT í þessi páskaegg? Það lætur manni líða viðurstyggilega, "Yes ég fékk nammi sem ég fæ alltaf frítt í bankanum, takk Nói þú ert bestur!"

Svo fékk ég annað frá Góu, reyndar svona Bónus páskaegg.. Og það var einhvað útbrennt Högl í því? Kannist þið við þetta nammi? Þetta er hreinn viðbjóður. Svo hvað er málið að troða endalausu súkkulaði í þetta? Er ekki hægt að gefa okkur meira gúmi, þetta er nú risa SÚKKULAÐIegg..

Ég kláraði ekki þessi páskaegg og ég held að ég muni aldrei fá mér páskaegg aftur, allavegana ekki í bili. Hvað er samt málið með þessi nöfn  á súkkulaði stykkjum? Nöfn eins og: Þetta, Tundur, - Hvar er frumleikinn?

Ég er búinn að vera einhvað down í vinnunni undanfarið, kannski því ég sakna Tona perra því að hann er orðinn pabbi.. Til hamingju Toni boy :D

Ég er einn þarna, umkringdur konum sem eru reyndar geggjað nice en stundum langar maður að fara að perrast.. :S 1 dagur og svo kemur frí, um helgar þá fer ég að sofa og sef út en ég nýt þess aldrei neitt rosalega, ég hugsa ekkert hvað ég er búinn að púla í vikunni til að fá þessa frídaga, en það er það sem ég ætla að gera næst..!

En hvað fenguð þið mörg páskaegg? Ég ætla að fara að sofa, vera ágætlega hress fyrir morgundaginn, annars grípur maður bara í eina Magic! Góða nótt og vonandi höfðuð þið gaman að þessu, ég fer að vera aðeins akvítvari hérna.. Gaman að það sé fólk þarna úti sem kann að meta bloggið mitt!


» 0 hafa sagt sína skoðun

05.04.2006 20:03:09 / Hörður

Flensu ógeð..

Já ég ligg hérna (eða reyndar er sitjandi núna) að skrifa þetta blogg með þvílíkan hita, ég er alveg að farast. Í gær voru það beinverkir en núna er það þvílíkur hósti, þreyta og kvef.

Ég er búinn að liggja uppí rúmi í allan dag að sofa. Alveg týpískt að maður verður veikur þegar litli bróðir manns er að fara að fermast. Alveg fáranlegt, mér á eftir að batna fyrir fermingardag hans (sunnudag) vonandi..

Ég er búinn að vera að djamma rosalega seinustu helgar... Ég er rosalega fámæltur í dag og ég ætla að hætta að skrifa þetta er blogg var ekki uppá marga punkta (er það ekki annars punkta????)

Jæja ég ætla að láta mér batna!! Bæjó :lol:

» 6 hafa sagt sína skoðun

29.03.2006 18:55:52 / Hörður

wednesday!

Já fuglaflensan er hætt að heltaka mig og það er annað sem er byrjað að heltaka mig, og hefur gert nú mörgum sinnum áður. Það er sjúkdómur sem kallast svefnleysi.

Sjúkdómurinn er þannig að þú villt fara að sofa og ert þreyttur á slaginu 12 en ferð samt að sofa 1:20, þannig lýsir hann sér hjá mér. Ég fer aldrei að sofa fyrr en það. Þegar ég mæti svo í vinnuna er ég rosalega þreyttur, en samt eftir 7 tíma svefn. Blogg um svefn er aldrei skemmtilegt en að ímynda sér að eiga besta rúm í heimi geggjað flott lcd 50" plasma sjónvarp, popp og kók þá er gaman að tala um svefn í þessu samhengi.

En já mér er þetta frekar skítugt, 21" samsung sjónvarp, lítið rúm (samt mjúkt), 3 bassar hangandi fyrir ofan mig og ágætis laptop.

Djöfull verður gaman á laugardaginn, ég er að spá í því að gera smá mottó núna, það er að djamma hverja einustu helgi í einhverntíma. Ég er að verða 18 ára og ég verð að nýta mér þennan tíma! Haha, ég segi þetta kannski því að seinustu 2 helgar hafa verið ógeðslega skemmtilegar. Vonandi verður þessi lika mad.

Ég er kominn með gott mottó núna, ég ætla að djamma hverja einustu helgi núna eins lengi og ég get þið megið vera velkomin að joina mig, og þessvegna báða dagana í vikunni... Þetta verður mitt mottó, að djamma og djamma og djamma!

En jæja ég er farinn að SOFA ætla að fara að sofa núna for now on kl 12 og sofa til 8:20 , það er góður svefn skal ég segja ykkur. Pæla í því samt hvað þessi 1 klst og 20 mins hefur áhrif á daginn... Maður ersvo heimskur maður fattar aldrei daginn eftir á hvað það er sárt að vera svona þreyttur í vinnunni, ég sver það augun mín eru rauð af þreytu núna. Well I'm out, sjáaaaaaaáááumst ;)


» 7 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 6